Það heldur áfram að vinda upp á sig mál norsku handknattleikskonunnar Noru Mørk en sími hennar var hakkaður síðastliðið haust og viðkvæmar persónulegar myndir af henni láku á netið.
Fyrr í vikunni bárust af því fréttir að leikmenn norska karlalandsliðsins dreifðu viðkvæmum myndum af henni innan liðsins, en þeim hafði verið stolið. Í dag greina svo norskir fjölmiðlar frá því að myndirnar af Mørk hafi ratað inn á síður A-evrópskra dagblaða og hefur hún leitað aðstoðar norsku utanríkisþjónustunnar.
„Ég veit ekki hvaða orð ég get notað. Þetta er afar sorglegt mál í alla staði,“ segir Kåre Geir Lio formaður norska handknattleikssambandsins við norska fjölmiðla en Mørk, sem hefur fengið mikinn stuðning frá samherjum sínum í norska landsliðinu sem og frá þjálfaranum, Þóri Hergeirssyni, hefur íhugað að hætta að leika með landsliðinu.