Undanúrslitin byrja í Eyjum

Það var hart barist er liðin mættust í undanúrslitum bikarsins.
Það var hart barist er liðin mættust í undanúrslitum bikarsins. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Undanúrslit Íslandsmóts karla í handbolta fara af stað í Vestmannaeyjum kl. 18:30 í kvöld. Eyjamenn fá þá heimsókn frá Haukum. Eyjamenn unnu 2:0-sigur á ÍR í átta liða úrslitum og Haukar lögðu Íslandsmeistara Val af velli, einnig 2:0.

Liðin hafa mæst þrívegis í vetur, einu sinni í bikar og tvisvar í deild. ÍBV vann bikarundanúrslitaleik liðanna, en þau unnu sitt hvorn heimaleikinn í deildinni.

ÍBV vann deildarmeistaratitilinn með sigri á Fram í síðasta leik á meðan Haukar enduðu í 5. sæti deildarinnar og munaði fimm stigum á liðunum þegar uppi var staðið. 

Þrjá sigra þarf til að tryggja sér sæti í úrslitunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert