Njarðvík í basli með botnliðið

Maciej Baginski sækir að körfu Hattar í kvöld. Mirko Stefan …
Maciej Baginski sækir að körfu Hattar í kvöld. Mirko Stefan Virijevic er til varnar. Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson

Njarðvíkingar komu flestum á óvart í kvöld þegar þeir áttu í mesta basli með að leggja sigurlaust lið Hattar í Dominos-deild karla í körfubolta. 86:77 varð niðurstaða leiksins og Njarðvíkingar máttu þakka sínu sæla að hafa sloppið með sigur. 

Maciek Baginski var stigahæstur heimamanna með 18 stig en hjá Hetti var það Kevin Lewis sem átti stórleik og skoraði 32 stig. 

Njarðvík 86:77 Höttur opna loka
99. mín. skorar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert