Býst ekki við að Taylor spili meira

Ryan Taylor og Hlynur Bæringsson eigast við.
Ryan Taylor og Hlynur Bæringsson eigast við. mbl.is/Árni Sæberg

Hlynur Bæringsson á ekki von á því að Ryan Taylor spili meira fyrir ÍR í úrslitakeppninni í körfubolta. Taylor sló Hlyn harkalega í þriðja leik ÍR og Stjörnunnar í Breiðholtinu í gær og á íslenski landsliðsmaðurinn von á að Taylor fái bann fyrir atvikið. 

„Við getum orðað það þannig að ég væri ekki til í að vera sá sem ætlar að skrifa varnarorðin. Það væri örugglega erfitt fyrir hvern mann að senda það frá sér,“ sagði Hlynur í samtali við Hjört Hjartarson í Akraborginni í dag. 

Hlynur finnur enn fyrir högginu núna, daginn eftir leik. 

„Ég er með smá hausverk en ég samt finn að ég er að braggast, eða ég vona það að minnsta kosti. Ég hitti lækni í gær í stutt spjall og við þurfum að taka stöðuna aftur núna, af því að maður var svona frekar vankaður í gærkvöldi,“ sagði Hlynur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert