Hildur áfram á sigurbraut

Hildur Björg Kjartansdóttir á landsliðsæfingu.
Hildur Björg Kjartansdóttir á landsliðsæfingu. mbl.is/Hari

Hildur Björg Kjartansdóttir og samherjar í spænska körfuknattleiksliðinu Celta Zorka eru áfram á sigurbraut í B-deildinni á Spáni en í gærkvöld unnu þær auðveldan útisigur á Ibaizabal, 76:53.

Hildur spilaði í 25 mínútur en hún skoraði 9 stig, tók 3 fráköst og átti tvær stoðsendingar. Celta er með fullt hús stiga og á toppi deildarinnar eftir fyrstu þrjár umferðirnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert