Martin og félagar í úrslit

Martin Hermannsson átti fínan leik fyrir Alba Berlín í dag …
Martin Hermannsson átti fínan leik fyrir Alba Berlín í dag og skoraði 7 stig og gaf 3 stoðsendingar. Ljósmynd/Eurocupbasketball.com

Martin Hermannsson og liðsfélagar hans í Alba Berlín eru komnir í úrslit þýska bikarsins í körfuknattleik eftir öruggan 105:70-sigur gegn Frankfurt í undanúrslitum þýska bikarsins í Frankfurt í dag.

Alba Berlín spilaði frábærlega í fyrri hálfleik og lagði þar með grunninn að góðum sigri en liðið leiddi með 28 stigum í hálfleik. Martin spilaði í rúmar tuttugu mínútur í dag og skoraði 7 stig og gaf þrjár stoðsendingar.

Alba Berlín mætir annaðhvort Bamberg eða Bonn í úrslitum þýska bikarsins en úrslitin fara fram 17. febrúar næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert