Sigursæl lið mætast í kvöld

Kristófer Acox er aftur kominn á ferðina með KR eftir …
Kristófer Acox er aftur kominn á ferðina með KR eftir meiðsli. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tvö af sigursælustu liðum landsins í körfuknattleik mætast í kvöld þegar 8. umferðin heldur áfram í Dominos-deild karla.

Þrír leikir eru á dagskrá og hefjast þeir allir klukkan 19:15. Íslandsmeistararnir í KR taka á móti Njarðvík í Frostaskjólinu. KR vann góðan útisigur á Keflavík í síðustu umferð og Njarðvík rótburstaði Þór Ak. 113:52.

Í Grafarvogi eigast við Fjölnir og Tindastóll og þá fara Valsmenn í heimsókn til Grindavíkur.

Keflavík og Stjarnan eru nú jöfn á toppnum með 12 stig en Keflavík á leik til góða.

Þór Akureyri og Stjarnan áttust við í gær í fyrsta leik umferðarinnar.

Pavel Ermolinskij og samherjar í Val verða í Grindavík í …
Pavel Ermolinskij og samherjar í Val verða í Grindavík í kvöld. mbl.is/Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert