Grindavík samdi við framherja

Elma Dautovic er mætt til Grindavíkur.
Elma Dautovic er mætt til Grindavíkur. Ljósmynd/Grindavík

Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur komist að samkomulagi við slóvenska framherjann Elmu Dautovic um að leika með kvennaliðinu á komandi tímabili.

Dautovic er 21 árs gömul, 187 sentimetrar á hæð og kemur frá Sokol HK í Tékklandi, þar sem hún lék á síðustu leiktíð.

Hún hefur jafnframt leikið með yngri landsliðum Slóveníu, sem hafa verið afar sterk á undanförnum árum.

„Ég er mjög spenntur að fá Elmu til liðs við okkur. Hún kemur með aukna hæð inn í liðið. Elma er einnig fjölhæfur leikmaður með gott skot.

Hún á eftir að styrkja liðið á marga vegu og mun vonandi passa vel inn í okkar lið,“ sagði Þorleifur Ólafsson þjálfari Grindavíkur í tilkynningu körfuknattleiksdeildar félagsins.

„Elma er mætt til landsins og verður vonandi komin með leikheimild á miðvikudag þegar Grindavík mætir Íslandsmeisturum Njarðvík á útivelli,“ sagði einnig í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert