Stórt tap landsliðsmannsins í Tyrklandi

Martin Hermannsson í landsleik með Íslandi.
Martin Hermannsson í landsleik með Íslandi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson og liðsfélagar hans í Alba Berlín máttu þola stórt tap fyrir Fenerbahce, 103:68, í Euroleague karla í körfubolta í kvöld. 

Þrátt fyrir tapið átti Martin góðan leik fyrir Berlínarliðið og var næststigahæstur með 12 stig. Gaf hann einnig tvær stoðsendingar. 

Alba Berlin er í neðsta sæti Euroleague, bestu deildar Evrópu, með fimm sigra og 27 töp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert