Dregur úr vöruskiptahalla

mbl.is

Vöruskiptin voru óhagstæð um 6,6 milljarða króna í október en í sama mánuði í fyrra voru þau óhagstæð um 8,9 milljarða króna. Á fyrstu tíu mánuðum ársins var halli á vöruskiptum við útlönd 81,6 milljarður króna en á sama tímabili í fyrra voru þau óhagstæð um tæpa 120 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 38,3 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Í októbermánuði voru fluttar út vörur fyrir 28,3 milljarða króna og inn fyrir tæpa 35 milljarða króna fob (37,8 milljarða króna cif).

Fyrstu tíu mánuðina 2007 voru fluttar út vörur fyrir 238,3 milljarða króna en inn fyrir tæpa 320 milljarða króna fob (346,4 milljarða króna cif).  

Leiðrétting vegna nýrra upplýsinga um viðskipti með flugvélar

 Verslun með flugvélar það sem af er árinu hefur nú verið leiðrétt vegna nýrra upplýsinga. Samkvæmt því er vöruskiptahalli í fyrri mánuðum þessa árs 1,75 milljörðum minni en áður var talið. Að auki eru í tölum fyrir janúar-október óvenju miklar leiðréttingar á niðurstöðum fyrri mánaða.

Sjávarafurðir 44% af heildarútflutningi

Fyrstu tíu mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruútflutnings 39 milljörðum eða 19,6% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44% alls útflutnings og var verðmæti þeirra tæplega 2% meira en á sama tíma árið áður.

Útfluttar iðnaðarvörur voru 40% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 28% meira en árið áður. Aukningu útflutnings má einna helst rekja til aukins álútflutnings og aukinnar sölu á skipum og flugvélum. Á móti kom samdráttur í útflutningi á lyfjum og lækningatækjum.

Aukning í innflutningi á mat og drykkjarvöru

 Fyrstu tíu mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruinnflutnings 0,7 milljarði eða 0,2% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í innflutningi á mat- og drykkjarvöru og annarri neysluvöru en á móti kom samdráttur í innflutningi á flugvélum og fjárfestingarvöru.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK