Olíuverð undir 116 dölum

Verð á hráolíu hefur lækkað á mörkuðum í dag og fór verð á svonefndri Brent Norðursjávarolíu í 115,86 dali í rafrænum viðskiptum á markaði í Lundúnum, lækkaði um 2 dali tunnan. Ástæðan er rakin til styrkingar Bandaríkjadals og væntinga fjárfesta um að almennt sé að hægjast á efnahagslífi heimsins.

Verð á olíu lækkaði einnig um 2 dali á markaði í New York og var 118,02 dalir tunnan nú undir hádegið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK