Björgólfsfeðgar tilbúnir að bjarga Eimskip

Björgólfur Guðmundsson er einn aðaleigandi Eimskips.
Björgólfur Guðmundsson er einn aðaleigandi Eimskips. mbl.is/Golli

Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson ætla að losa Eimskip undan ábyrgð á 207 milljóna evra láni falli hún á félagið. Þeir munu þá leiða hóp fjárfesta sem lánar Eimskip þessa upphæð, kaupir kröfuna sem jafngildir um 26 milljörðum króna, og frestar gjalddaga.

Eimskipafélag Íslands gaf út ábyrgð í tengslum við sölu ferðaþjónustufyrirtækisins XL Leisure Group seint á árinu 2006 sem enn er í gildi.  Mikil óvissa hefur verið í kringum Eimskip undanfarna daga vegna ótta fjárfesta um að ábyrgðin falli á félagið. Var Eimskip fært á athugunarlista Kauphallarinnar í gær og lækkaði gengi félagsins um 8,2%. Í tilkynningu frá Eimskip segir að samkvæmt upplýsingum  frá XL sé unnið að endurfjármögnun lánsins. 

„Án þess að taka afstöðu til þess hvenær þeirri vinnu muni ljúka, þá telur stjórn Eimskips ljóst af aðstæðum á evrópskum flugmarkaði og rekstrarumhverfi flugfélaga almennt að líkur á þvi að ábyrgðin falli á Eimskip hafi aukist.  Í ljósi þessa telur stjórn félagsins skynsamlegt að tryggja stöðu þess, komi til þess að ábyrgðin falli." segir í tilkynningunni.

„Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson hafa ákveðið að styrkja stöðu Eimskips, komi til þess að umrædd ábyrgð falli á félagið.  Falli ábyrgðin á félagið, mun hópur fjárfesta undir þeirra forystu kaupa kröfuna og fresta gjalddaga hennar.  Jafnframt er fyrirhugað að hún muni víkja fyrir kröfum annarra lánardrottna á hendur Eimskip.  Með þessum aðgerðum eru takmörkuð þau áhrif sem ábyrgðir vegna lána og annarra skuldbindinga vegna XL samstæðunnar kunna að hafa á starfsemi Eimskips.  Fjárhæð kröfu vegna sölu XL og flugrekstrarleyfisábyrgða, sem ofangreindir fjárfestar hafa lýst sig reiðubúna að kaupa, er um 207 milljónir evra. "

Í tilkynningunni er þetta haft eftir Gylfa Sigfússyni forstjóra Eimskips:

„Endurfjármögnun XL hefur verið stór þáttur í að losa Eimskip undan umræddum ábyrgðum. Við vonumst enn til þess að það ferli klárist en viljum jafnframt  benda á að það ferli kann að reynast erfiðara en áður var talið. Komi til þess að ábyrgðin falli á Eimskip hafa öflugir fjárfestar lýst sig reiðubúna til að styðja við félagið sem ég tel mjög jákvætt.

Markmið okkar er að eiginfjárhlutfall félagsins sé yfir 25%. Í því samhengi er unnið að ýmsum aðgerðum í rekstri félagsins. Tilgangur þessara aðgerða er að lækka skuldir Eimskip umtalsvert og þar með styrkja fjárhag félagsins og eiginfjárhlutfall.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK