Yfirheyrður vegna 750 milljóna evra taps

Lögregla í Frakklandi hefur handtekið verðbréfamiðlara og er að yfirheyra hann vegna 751 milljónar evra taps, sem franski bankinn Caisse d'Epargne varð fyrir í flóknum afleiðuviðskiptum. Æðstu stjórnendur bankans sögðu af sér vegna málsins. 

Í stuttu máli veðjaði bankinn á að hlutabréf myndu hækka í verði í heiminum en niðurstaðan varð hrun á hlutabréfamörkuðum um allan heim. 

Franski bankinn Société Générale tapaði 4,9 milljörðum evra fyrr á þessu ári vegna viðskipta miðlarans Jerome Kerviel.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK