Viljayfirlýsing um byggingu gagnavers

Hafnarfjörður
Hafnarfjörður mbl.is

Hafnarfjarðarbær hefur ritað undir viljayfirlýsingu við Greenstone ehf varðandi byggingu allt að 50.000 fermetra gagnaver á lóð sveitarfélagsins. Viljayfirlýsingin stendur til þess að Hafnarfjarðarbær mun leggja til lóð undir gagnaver og Greenstone ehf mun sjá um kynningu á möguleikum sveitarfélagsins í þessu efni, hönnun og væntanlega byggingu gagnavers.

Þegar hefur Greenstone ehf ritað undir viljayfirlýsingu við Landsvirkjun þess efnis að orkufyrirtækið útvegi Greenstone a.m.k. 50 MW af orku. Um þessar mundir er hafin lagnin nýs ljósleiðara til Evrópu frá Íslandi sem og aðrar gagnatengingar eru í augsýn er tengja landið bæði við Evrópu og N-Ameríku. Lögð er áhersla á að lagning nýs ljósleiðara til Bandaríkjanna beint frá Íslandi er talin nauðsynlegur í þessu efni. Slíkt mun auka á möguleika á að alþjóðleg fyrirtæki sjái sér fært að staðsetja gagnver sín á Íslandi og nýta þannig vistvæna orku landsins til að kæla og keyra mengunarlausan tæknibúnað gagnavera, að því er segir í tilkynningu.

Vænta má að allt að 20 bein störf geti skapast í sveitarfélaginu og allt að 20 óbein störf bæði í sveitarfélaginu og nágrannasveitarfélögum Hafnarfjarðarbæjar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK