„Sviss gæti orðið næsta Ísland"

Svissneski seðlabankinn í Bern.
Svissneski seðlabankinn í Bern.

Bandarískur hagfræðingur segir í samtali við svissneskt blað, að hætta sé á að svissneska bankakerfið hrynji saman vegna þess að bankarnir hafi veitt fyrirtækjum í austurhluta Evrópu há lán, sem nú eru að falla. „Það er hætta á að Sviss fari sömu leið og Ísland," segir hann.

Þessi ummæli  Arthurs P. Schmidts í blaðinu Tages Anzeiger hafa vakið talsverða athygli og hafa fjölmiðlar víða í Evrópu sagt frá þeim. 

Schmidt segir, að í ýmsum löndum í austurhluta Evrópu, svo sem í Póllandi, Ungverjalandi og Króatíu, hafi þúsundir heimila og fyrirtækja tekið lán í svissneskum frönkum í staðinn fyrir lán í eigin gjaldmiðlum til að þurfa ekki að greiða eins háa vexti. Þannig séu 31% allra lána í Ungverjalandi í svissneskum frönkum og 60% lána þarlendra heimila.

Nú hafa þessi myntkörfulán skyndilega orðið mun dýrari, eins og Íslendingar þekkja, vegna þess að austur-evrópskir gjaldmiðlar hafa margir fallið líkt og íslenska króna. 

„Ungverska forintan og pólska zlotyð hafa misst rúman þriðjung af verðgildi sínu gagnvart frankanum á síðustu vikum. Margar þjóðir í Austur-Evrópu eiga í alvarlegum greiðsluerfiðleikum og eru í raun gjaldþrota," hefur Tages Anzeiger eftir Schmidt.

Viðtalið við Schmidt

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK