Bjarni endurgreiðir Glitni

Bjarni Ármannsson var forstjóri Glitnis fram í maí á síðasta …
Bjarni Ármannsson var forstjóri Glitnis fram í maí á síðasta ári. mbl.is/Brynjar Gauti

Glitnir banki og Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri Glitnis, hafa gert samkomulag um endurgreiðslu yfirverðs í  hlutabréfaviðskiptum hlutafélaga í eigu Bjarna við stjórn Glitnis  við starfslok hans sem voru í apríl 2007. Um er að ræða 650 milljónir króna.

Í yfirlýsingu frá skilanefnd Glitnis segir, að Glitnir hafi nýlega óskað eftir því við Bjarna að félög í hans eigu endurgreiddu yfirverð í hlutabréfaviðskiptunum auk samningsvaxta og var fallist á það.  „Glitnir banki fagnar því að Bjarni telur það ábyrgð sína að verða við málaleitaninni sem leiddi til þessa samkomulags.  Greiðslan nú nemur ríflega 650 milljónum króna," segir í yfirlýsingunni.

Fyrir rúmu ári endurgreiddi Bjarni starfslokasamning sinn að eigin frumkvæði og námu greiðslur til bankans þess vegna alls 370 milljónum króna.  Greiðslur Bjarna til bankans vegna starfsloka hans hafa því numið u.þ.b. 1020 milljónum króna, að sögn Glitnis.

„Um fullnaðaruppjör milli aðila er að ræða sem felur auk þessa í sér að félög Bjarna, sem eiga u.þ.b. 273 milljóna króna skuldabréfakröfur á bankann, falla frá greiðslukröfum á hendur bankanum. Ekki eru uppi aðrar kröfur Bjarna eða félaga hans á hendur bankanum," segir í tilkynningu frá skilanefndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK