Minnsta verðbólga frá 2004

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í október hækkar um 0,05% frá fyrra mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,6%. Er þetta minnsta 12 mánaða verðbólga sem mælst hefur frá því í apríl 2004 þegar hún var 2,2%. Verðbólgumarkmið Seðlabankans er 2,5%.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,8% sem jafngildir 3,2% verðbólgu á ári en 3,6% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis.

Hækkun vísitölunnar nú er mun minni en sérfræðingar bankanna höfðu gert ráð fyrir. Þannig spáði Greining Íslandsbanka því, að vísitalan myndi hækka um 0,5% og 12 mánaða verðbólga væri þá 3,1%. 

Fram kemur í tilkynningu Hagstofunnar, að flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 18,7% (vísitöluáhrif -0,18%), verð á bensíni og olíum hækkaði um 2,6% (0,14) og kostnaður vegna rafmagns til lýsingar hækkaði um 8,9% (0,11).

Tilkynning Hagstofunnar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK