208 fyrirtæki gjaldþrota í mars

Flest gjaldþrot verða í byggingarstarfsemi.
Flest gjaldþrot verða í byggingarstarfsemi.

Í mars 2011 voru skráð 178 ný einkahlutafélög  samanborið við 164 einkahlutafélög í mars 2010, sem jafngildir um 8,5% fjölgun á milli ára. Á sama tíma voru 208 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 107 fyrirtæki í mars 2010, sem jafngildir um 94% fjölgun á milli ára.

Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofunni en þetta er mesti fjöldi gjaldþrota á einum mánuði frá því bankakerfið hrundi haustið 2008.

Flest gjaldþrot í mars voru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Fyrstu 3 mánuði ársins 2011 hafa 433 fyrirtæki orðið gjaldþrota. Er það rúmlega 47% aukning frá sama tímabili árið 2010 þegar 294 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.

Flest einkahlutafélög eru skráð í flokka heild- og smásöluverslunar og viðgerða á vélknúnum ökutækjum.

Alls hafa 443 einkahlutafélög verið skráð ný á fyrstu 3 mánuðum ársins og hefur nýskráningum fækkað um rúmlega 5,5% frá sama tímabili árið 2010 þegar 469 ný einkahlutafélög voru skráð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK