Egill kemur út í Vesturheimi

Egill Helgason ferðast um Íslendingaslóðir í þáttunum Versturfarar.
Egill Helgason ferðast um Íslendingaslóðir í þáttunum Versturfarar. mbl.is/Steinar

Unnið er að útgáfu þáttanna „Vesturfarar“ á mynddiski með enskum texta til dreifingar á Íslendingaslóðum í Kanada auk þess sem þreifingar eru í gangi um sýningu þeirra í kanadíska ríkissjónvarpinu og á Norðurlöndum.

Í þáttunum ferðast Egill Helgason um Íslendingaslóðir í Kanada og Bandaríkjunum og skoðar mannlífið, menninguna og heyrir sögurnar þar á bak við. Framleiddir voru tíu þættir sem sýndir eru á sunnudagskvöldum á RÚV og verður sá síðasti á næstkomandi sunnudag. Egill segir ýmislegt vera í þáttunum sem ætti fullt erindi við erlendan markað en bendir þó á málið sé einungis á byrjunarstigi auk þess sem nauðsynlegt sé að aðlaga þá aðeins áður en svo fer. „Núna erum við að vinna í DVD útgáfunni þannig að ættingjar okkar handan hafsins geti horft á þættina,“ segir hann.

Mikið áhorf erlendis frá

Einar Logi Vignisson, auglýsingastjóri hjá RÚV, segir að mynddiskarnir verði ekki gefnir út erlendis með hefðbundnum hætti heldur fari þeir til Íslendingafélaga sem sjá um dreifinguna. Þá staðfestir hann að á næstu mánuðum verði búin til útgáfa af þáttunum til kynningar fyrir erlendar sjónarvarpsstöðvar, bæði skandínavískar og kanadískar. Hugur stendur til að koma þáttunum inn hjá svæðisstöð CBS, kanadíska ríkissjónvarpsins, í Winnipeg.

„Þó svo að þættirnir séu sýningarhæfir er bara hluti af þessu sem á erindi við aðrar þjóðir og við þurfum að vinna þetta til,“ segir Einar. „Þetta eru frábærir þættir sem hafa hlotið góðar viðtökur heima og við vitum að fjöldi Íslendinga sem búsettir eru erlendis eru búnir að hafa samband vegna þáttanna og töluvert er horft á þetta á ruv.is erlendis frá,“ segir hann.

Útgáfudagur mynddisksins er ekki ljós en Einar segir að gaman væri að ná því fyrir jól. Diskurinn fer í almenna sölu hérlendis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK