„Saman brúum við bilið á milli þess að vera arkitektastofa og auglýsingastofa. Við vinnum með concept fyrirtækja svo þau þurfi ekki að leggja alla áherslu á vörumerkið sitt til þess að fólk viti hvar það er statt,“ segir Hafsteinn Júlíusson en hann rekur fyrirtækið HAFstudio ásamt Karitas Sveinsdóttur eiginkonu sinni.
Hjónin stofnuðu fyrirtækið sitt á Ítalíu í kjölfar náms í Mílanó og fluttu það heim árið 2011. Hafsteinn stundaði nám í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands fyrir nám sitt í innanhúss- og iðnhönnun í SPD í Mílanó og Karitas er innanhúsarkitekt frá IED í Mílanó.
Síðan þau fluttu heim hefur hvert verkefnið rekið annað; hönnun verslunar 66° Norður, veitingastaðarins Mar, einnig Nam, Reykjavík Light Hótels, forritunarskólans Rekode, fataverslunarinnar Suit og nú stærstu verslunar Símans sem opnuð var að nýju um helgina í Kringlunni eftir endurhönnun HAFstudio.
Hafsteinn segir að lykillinn að baki endurhönnun verslunar Símans hafi verið að gera hana heimilislega og þægilega, með hátækni undirliggjandi. „Risasnertiskjár. Allt sjónrænt. Öll tæki uppi á borðum og staður þar sem skoða má hlutina í nýju ljósi,“ segir hann. „Við vildum sýna framtíðina – samt þar sem framtíðin er ekki eins fáránleg og við mörg ímyndum okkur.“