Hækkar um 12,5% milli ára

Miðað við maí 2014 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 12,5%
Miðað við maí 2014 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 12,5% mbl.is/Árni Sæberg

Miðað við maí 2014 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 12,5% og verðvísitala sjávarafurða um 9,6%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 18,9% en verð á matvælum staðið í stað.

Vísitala framleiðsluverðs í maí 2015 var 222,6 stig og er því óbreytt frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir lækkaði hins vegar um 0,9 prósent og stendur í 274,6 stigum en vísitöluáhrifin voru -0,3% frá fyrri mánuði.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofu Íslands.

Vísitala fyrir stóriðju var 228,3 stig og lækkaði um 0,5%. Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,7% og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 2,2% (0,4%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 1,2% milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 0,4%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK