1,5 milljarður á dag í Kauphöllinni

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Heildarviðskipti með hlutabréf í júnímánuði námu alls rúmum 29 milljörðum króna eða tæpum 1,4 milljarði á dag. Það er 15 prósent lækkun frá fyrri mánuði en 5 prósent hækkun milli ára.

Mest voru viðskipti með bréf Icelandair Group (ICEAIR), eða fyrir 7,2 milljarða, Eimskipafélags Íslands (EIM), 2,9 milljarða, Reita fasteignafélags (REITIR), 2,5 milljarða, N1 (N1), 2,5 milljarða og Marel (MARL), 2,4 milljarða.

Úrvalsvísitalan (OMXI8) hækkaði um 2,3% á milli mánaða og stendur nú í 1.478 stigum.

Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með mestu hlutdeildina, 29,9%, Íslandsbanki með 22,6%, og Landsbankinn með 16,3%.

Í lok júní voru hlutabréf 19 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi.  Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 864 milljörðum króna, samanborið við 847 milljarða í maí.

34% í skuldabréfaviðskiptum

Heildarviðskipti með skuldabréf námu 181 milljarði í síðasta mánuði sem samsvarar 8,6 milljarða veltu á dag. Þetta er 2% hækkun frá fyrri mánuði, en 34% hækkun frá fyrra ári.

Alls námu viðskipti með ríkisbréf 164 milljörðum en viðskipti með íbúðabréf námu 9 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 19 0226, 30,7 milljarðar, RIKB 22 1026, 29,0 milljarðar, RIKB 25 0612, 27,4 milljarðar, RIKB 20 0205, 25,5 milljarðar og RIKB 31 0124, 20,9 milljarðar.

Á skuldabréfamarkaði var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina, 27,1%, MP banki með 24,5% og Landsbankinn með 17,0%.

Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 2,3% í júní og stendur í 1.124 stigum. Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 2,8% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 2,0%.            

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK