Fjármagnar kokkanám með vefjuvagni

Lárus Guðmundsson
Lárus Guðmundsson Mynd af Facebook síðu Vefjuvagnsins

Lárus Guðmundsson hyggur á kokkanám við einn virtasta skóla Frakklands, Institut Paul Bocuse. Námið er hins vegar dýrt og hefur Lárus því opnað vefjuvagn á Geirsgötu sem hugsaður er sem fjáröflun til þess að draumurinn geti orðið að veruleika.

Á matseðlinum í vagninum er Chili Con Carne, lamba karrý, grænmetisvefja og upprúllaðar pönnukökur með sykri í „ömmustíl“.

Í samtali við Veitingageirann segir Lárus að námið kosti um 5,6 milljónir króna að undanskildum dvalarkostnaði. Lárus hefur töluverða reynslu af matargerð og hóf störf á sushi staðnum suZushii í Kringlunni sextán ára gamall. Síðar vann hann á Hótel Holti og þar á eftir var hann yfirmaður í eldhúsi Kjöt Kompanísins.

Námið sem Lárus hyggur á er þriggja ára langt og lýkur með BA prófi í matreiðslulist og veitingahúsastjórnun.

Lárus segir tilviljun hafa ráðið því að skólinn varð fyrir valinu. Hann segist hafa setið á einum af veitingastöðum Paul Bocuse, þ.e. eiganda skólans, í Lyon í Frakklandi, þegar hjólin byrjuðu að snúast.

„Sama hvað það kostar“

Á borðinu við hliðina á Lárusi sat maður sem var sífellt að tala í símann. Síðar afsakaði maðurinn sig við Lárus og út frá því hófust samræður þeirra á milli. Þá kom í ljós að maðurinn var gæðastjóri yfir öllum veitingastöðum Paul Bocuse. Eftir stutt samtal um matargerð hvatti hann Lárus til þess að sækja um og bauðst í kjölfarið til þess að panta fyrir hann VIP kvöldverð á einum af veitingastöðunum sem hann hafði umsjón með. 

„Það var einstök upplifun og mér leið eins og ég hefði verið staddur í einhverju ævintýri því ég fór til Frakklands með hugmyndir um framtíðina en kom til baka með plan ég verð að komast í þennan skóla hvað sem það kostar,“ segir Lárus í samtali við Veitingageirann.

Facebook-síða Vefjuvagnsins

Vefjuvagninn er á Geirsgötu.
Vefjuvagninn er á Geirsgötu. Mynd af Facebook síðu Vefjuvagnsins
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK