Framúrskarandi nemendur fengu styrk

Hópmynd af þeim sem fengu námsstyrk Íslandsbanka.
Hópmynd af þeim sem fengu námsstyrk Íslandsbanka.

Íslandsbanki veitti 13 nemendum námsstyrki í ár að heildarupphæð 4,3 milljónir króna en nemendurnir eru allir taldir hafa skarað fram úr á sínu sviði. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, afhenti styrkina í höfuðstöðvum bankans á Kirkjusandi. Samtals bárust 300 umsóknir.

Námsstyrkjum Íslandsbanka fjölgaði í ár um þrjá og jókst heildarupphæðin um 900 þúsund. Fimm styrkir voru veittir til háskólanema á framhaldsstigi að upphæð 500 þúsund krónum hver, fimm styrkir voru veittir til háskólanema að upphæð 300 þúsund krónum og þrír styrkir til framhaldsskólanema að upphæð 100 þúsund krónum hver.

Í dómnefnd sátu þau Hafsteinn Bragason, mannauðsstjóri Íslandsbanka, Dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, Gylfi Dalmann, dósent við Háskóla Íslands, og Hólmfríður Einarsdóttir, markaðsstjóri Íslandsbanka.

„Það er ljóst að við höfðum erfitt verk fyrir höndum að velja úr þessum myndarlega hópi ungs fólks sem hvert og eitt er að fást við stórvirki á sínu sviði. Við afhendum í ár 13 námsstyrki sem er aukning frá fyrra ári. Með þessu vill bankinn styðja betur við afburðanámsmenn,“ er haft eftir Hafsteini Bragasyni, mannauðsstjóra Íslandsbanka, í tilkynningu.

Styrkhafar í ár eru:

  • Dagur Tómas Ásgeirsson, nemandi í Menntaskólanum í Reykjavík. Dagur Tómas hefur keppt í stærðfæði á alþjóðlegum vettvangi og verið í Ólympíuliði Íslands í stærðfræði síðan 2014.

  • Helen Xinwei Chen, nemandi í Menntaskólanum í Reykjavík. Helen hefur spilað á þverflautu frá 8 ára aldri og spilað einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands aðeins 12 ára gömul.

  • Áslaug Ósk Hinriksdóttir, nemendi í Fjölbrautarskólanum við Ármúla. Áslaug ákvað að snúa aftur í nám en á árum áður var hún í landsliði Íslands í badminton.

  • Kolbeinn Stefánsson, viðskiptafræðinemi í Háskóla Íslands. Kolbeinn státar af glæsilegum námsárangri úr MR og fyrsta ári í HÍ.

  • Birta Bæringsdóttir, læknisfræðinemi í Háskóla Íslands. Birta hefur skilað framúrskarandi árangri í námi. Samhliða námi hefur hún starfað við umönnun á Grund.

  • Bjarni Örn Kristinsson, nemandi í Massachusetts Institue of Technology. Bjarni hefur náð glæstum árangri í námi og í frjálsum íþróttum.

  • Ingvar Hjartarson, nemandi í Háskóla Íslands. Ingvar lauk grunn- og menntaskóla með frábærum vitnisburði og tók á sama tíma þátt í landsliðsverkefnum í frjálsum.

  • Ingveldur María Hjartardóttir, nemandi í Berklee College and Management. Ingveldur leggur stund á nám í söngdeild skólans og hefur komist á lista yfir afburðanemendur.

  • Eygló Myrra Óskarsdóttir, nemandi í KTH Royal Institute of Technology. Eygló lauk B.Sc. í fjármálafræði í Bandaríkjunum og hefur um árabil verið í landsliðinu í golfi.

  • Rósa Þórunn Hannesdóttir, nemandi í London Metropolitan University. Rósa Þórunn hefur helgað líf sitt og starf eyðibýlum á Íslandi og hefur gefið út bók um þau.

  • Ragnar Pétur Kristjánsson, nemandi í Kings´s College. Ragnar Pétur hefur fengið inngöngu í skólann og hyggst leggja stund á geimlífeðlisfræði.

  • Eiríkur Þór Ágústsson, nemandi í ETH Zurich. Eiríkur Þór vinnur að því að gera tækjum kleyft að skilja hvað þau sjá í kringum sig með myndavélum.

  • Herdís Stefánsdóttir, nemandi í NYU Steinhard. Herdís stefnir á að útskrifast næsta vor með meistarapróf í kvikmyndatónsmíðum, fyrst íslenskra kvenna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK