Framleiðsluverð lækkar á milli mánaða

Rósa Braga

Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 2,5% í júlí frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir hækkaði um 1,0% (vísitöluáhrif 0,3%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju ækkaði um 6,6% (-2,2%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,4% (0,2%) og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 4,4% (-0,8%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,7% (-0,2 %) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um
3,2% (-2,3%).

Miðað við júlí 2014 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 7,4% og verðvísitala sjávarafurða hækkað um 8,8%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 7,5% en verð á matvælum hækkað um 1,5%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK