Sölutölur Adele eru komnar í hús og þær eru nokkuð góðar. Enginn listamaður hefur nokkru sinni selt fleiri plötur í fyrstu söluviku. Alls seldist platan „25“ í 3,38 milljónum eintaka í Bandaríkjunum en fyrra metið var frá árinu 2000 og í nafni strákahljómsveitarinnar NSYNC. Adele bætti metið um tæpa milljón eintaka.
Til samanburðar seldi Taylor Swift 1,3 milljón eintaka af nýjustu plötu sinni „1989“ í október í fyrra.
Í samtali við CNN Money bendir David Bakula, sérfræðingur hjá Nielsen Music, fyrirtæki sem heldur utan um plötusölu, á að metið sé í rauninni ótrúlegt á tímum þar sem plötusala er sífellt að dragast saman. Sem dæmi má nefna að árið 2000, þegar fyrra metið var sett, seldust 785 milljónir geisladiska í Bandaríkjunum, en talið er að heildarsalan í ár verði í kringum 250 milljónir.
Líkt og fram hefur komið ákvað Adele að setja plötuna á streymiþjónustuna Pandoru í stað Spotify eða Apple Music til þess að ýta undir plötusölu. Hjá Pandoru geta notendur ekki valið sérstök lög til þess að spila heldur velur þjónustan lögin og er valið sérsniðið að tónlistarsmekk viðkomandi.
Frétt mbl.is: Pandora vann Spotify og Apple í slag um Adele