Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögu samstarfsnefndar ríkis og sveitarfélaga, eða hinnar svokölluðu Jónsmessunefndar, að skipa starfshóp í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Hópurinn mun hafa það hlutverk að meta ábyrgð lífeyrisskuldbindinga sem myndast hafa í opinberum lífeyrissjóðum vegna samrekstrar ríkis og sveitarfélaga og ýmissa viðfangsefna sem kostuð hafa verið af þessum aðilum.
Starfshópnum er ætlað að greina og gera tillögu að heildstæðu uppgjöri milli aðila. Jafnframt verður lagt mat á lífeyrishækkanir sem greiddar hafi verið vegna ábyrgðar launagreiðenda og greiðslur vegna bakábyrgðar, uppreiknaðar á sambærilegan hátt til uppgjörs. Þá verður farið yfir forsendur flutnings réttinda milli lífeyrissjóða sveitarfélaga og ríkisins og ábyrgð vegna þeirra.
Helstu verkefni starfshópsins eru:
Eftirtaldir eru skipaðir í starfshópinn af hálfu sveitarfélaga:
Eftirtaldir eru skipaðir í starfshópinn fyrir hönd fjármála- og efnahagsráðuneytis:
Formaður starfshópsins er Magnús Pétursson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri.
Vinnuhópurinn á að ljúka störfum eigi síðar en í árslok 2016. Að auki skal hann á fyrri hluta árs skila áfangaskýrslu þar sem skilgreind verði helstu viðfangsefni og álitamál.