Tekur yfir alla bankaþjónustu á flugvellinum

Frá miðnætti sér Arion banki um alla bankaþjónustu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og mun þannig þjónusta komu- og brottfararfarþega í flugstöðinni. Fram kemur í fréttatilkynningu að höfuðárhersla verði lögð á gjaldeyrisþjónustu og þjónustu vegna endurgreiðslu virðisaukaskatts.

„Arion banki verður með þrjár nýjar afgreiðslur og verða 13 hraðbankar staðsettir víðsvegar um flugstöðvarbygginguna, er þar um umtalsverða aukningu að ræða frá því sem verið hefur. Þjónustan verður hins vegar fyrst um sinn veitt í bráðabirgðaraðstöðu á tveimur stöðum í flugstöðinni á meðan afgreiðslur bankans verða settar upp. Viðskiptavinir eru beðnir velvirðingar á þessu millibilsástandi þar til nýjar afgreiðslur verða opnaðar 8. maí næstkomandi,“ segir ennfremur.

Þá segir að Arion banki muni veita þjónustu allan sólarhringinn á háannatíma ársins. Það er yfir sumartímann og fram í október en þá munu um 60 starfsmenn sinna þjónustunni. „Meðal þeirra er fyrrum starfsfólk Landsbankans sem sinnt hefur bankaþjónustu á Keflavíkurflugvelli undanfarin ár, en Arion banki réð til starfa alla úr þeim hópi sem sóttust eftir því að sinna áfram þjónustu í flugstöðinni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK