Elísabet nýr markaðsstjóri drykkja

Elísabet Sveinsdóttir
Elísabet Sveinsdóttir Ljósmynd/Ölgerðin

Elísabet Sveinsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri drykkja hjá Ölgerðinni.

Elísabet hefur starfað við markaðsmál um árabil, gegndi stöðu forstöðumanns markaðssviðs Advania og leiddi endurmörkun fyrirtækisins. Elísabet var meðal annars formaður ÍMARK til nokkurra ára og gegnir í dag formennsku í Félagi háskólakvenna og kvenstúdenta.

Á starfsferli sínum hefur hún stýrt markaðsmálum hjá Íslandsbanka, unnið að stofnun nýs sviðs innan Icelandair og stýrt tónlistarhúsinu Salnum í Kópavogi, svo eitthvað sé nefnt. Þá vann hún um skeið sem fréttamaður á fréttastofu RÚV.

Elísabet hefur látið til sín taka í ýmiss konar sjálfboðastörfum og hefur, ásamt samstarfskonum sínum, leitt átakið „Á allra vörum“ sem á síðustu árum hefur staðið fyrir myndarlegum landssöfnunum.

Elísabet er með MBA-próf frá Háskóla Íslands og próf í hagnýtri fjölmiðlun frá sama skóla. Þá stundaði hún nám í Rockford University í Bandaríkjunum að stúdentsprófi loknu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK