Heiðrún Lind Marteinsdóttir héraðsdómslögmaður hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Heiðrún Lind hefur störf á næstu vikum samkvæmt fréttatilkynningu, en um þrjátíu umsóknir bárust um starfið. Hún tekur við starfinu af Kolbeini Árnasyni sem tók við starfinu árið 2013.
„Heiðrún Lind lauk lagaprófi árið 2007 og hefur starfað hjá LEX lögmannsstofu óslitið frá þeim tíma, fyrst sem fulltrúi og síðar sem eigandi. Hún hefur að meginstefnu veitt ráðgjöf á sviði samkeppnis-, verktaka- og útboðsréttar, auk alhliða ráðgjafar til fyrirtækja og sveitarfélaga. Einnig hefur Heiðrún Lind sinnt málflutningi í nokkrum mæli. Hún lauk prófi í verðbréfaviðskiptum árið 2013,“ segir ennfremur.