Sex nýir starfsmenn hjá Pipar/TBWA

Kría Benediktsdóttir, Hólmfríður Rut Einarsdóttir, Eyrún Eyjólfsdóttir, Einar Aðalsteinsson, Aðalheiður …
Kría Benediktsdóttir, Hólmfríður Rut Einarsdóttir, Eyrún Eyjólfsdóttir, Einar Aðalsteinsson, Aðalheiður Konráðsdóttir og Alexandra Axelsdóttir.

Á undanförnum vikum hafa sex nýir starfsmenn bæst í starfsmannahóp auglýsingastofunnar Pipars\TBWA.

Kría Benediktsdóttir er grafískur hönnuður með BA frá LHÍ, sem starfaði áður hjá Hvíta húsinu, EogCo og Brandenburg. Alexandra Axelsdóttir er birtingarráðgjafi með MS í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum frá HÍ. Hún starfaði áður sem verkefnastjóri hjá Tulipop og Trix. Einar Aðalsteinsson forritari er menntaður leikari frá LAMDA. Hann vann um tíma í samfélagsmiðladeild Pipars\TBWA, en starfaði síðan sem forritari í New York áður en hann sneri aftur til Pipars\TBWA. Eyrún Eyjólfsdóttir Steffens er kvikari með menntun í grafískri hönnun og starfaði meðal annars áður hjá Sagafilm og Ignition Creative í Kaliforníu.

Aðalheiður Konráðsdóttir er markaðsráðgjafi með MS í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum. Hún hefur meðal annars unnið hjá Íslensku auglýsingastofunni, Arion banka og ENNEMM.

Hólmfríður Rut Einarsdóttir er markaðsráðgjafi með BA frá Københavns Erhvervsakademi (KEA) í markaðsfræðum, samskiptamiðlun og hönnunartækni.

„Það er okkur, sem störfum hjá PIPAR\TBWA, sönn ánægja að fá svo vel menntað og reynslumikið fólk til starfa sem mun án efa styrkja og auka breidd auglýsingastofunnar enn frekar,“ er haft eftir Valgeiri Magnússyni, framkvæmdastjóra Pipars\TBWA, í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK