Sjö aðilar verða sjálfkjörnir í stjórn Marels á aðalfundi félagsins sem haldinn verður á fimmtudaginn. Þeir eru Ann Elizabeth Savage, Arnar Þór Másson, Ásthildur Margrét Otharsdóttir, Ástvaldur Jóhannsson, Helgi Magnússon, Margrét Jónsdóttir og Ólafur Steinn Guðmundsson.
Í tilkynningu frá Marel kemur fram að framboðsfresturinn sé nú runninn út en samþykktir félagsins kveða á um að fjöldi stjórnarmanna skuli vera 5-7. Þar af leiðandi verða framangreindir sjö aðilar sjálfkjörnir í stjórn félagsins án sérstakrar atkvæðagreiðslu.