Sigurður Sæberg Þorsteinsson, sem gegnt hefur starfi deildarstjóra á rekstrarlausnasviði Advania undanfarið ár, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þjónustu- og markaðssviðs fyrirtækisins en alls starfa um 50 manns á sviðinu.
Áður en Sigurður hóf störf hjá Advania var hann sölu- og markaðsstjóri Þekkingar frá árinu 2013. Þar áður var hann viðskiptastjóri hjá Þekkingu, verkefnastjóri hjá Anza, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs Líflands og deildarstjóri flugrekstrarsviðs Air Atlanta á Íslandi. Hann er með B.Sc. í viðskipta- og markaðsfræðum frá Auburn Montgomery háskólanum í Bandaríkjunum.
Sigurður er kvæntur Tinnu Margréti Rögnvaldsdóttur, starfsmanni Global Quality hjá Actavis. Saman eiga þau þrjú börn.
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar á sviði upplýsingtækni en auk þeirra starfa 280 hjá Advania í Svíþjóð og 120 hjá Advania í Noregi.