Hugverkaráð SI skipað

Hugverkaráð SÍ: Svana Helen Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Stika, Valgerður Hrund Skúladóttir, …
Hugverkaráð SÍ: Svana Helen Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Stika, Valgerður Hrund Skúladóttir, framkvæmdastjóri Sensa, Erlendur Steinn Guðnason, framkvæmdastjóri Vizido, Ragnheiður H. Magnúsdóttir, stjórnandi hjá Marel, Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, Jóhann Þór Jónsson, forstöðumaður rekstrarsviðs Advania, Helga Margrét Reykdal, framkvæmdastjóri Truenorth, Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri Nox Medical, María Bragadóttir, framkvæmdastjóri Alvogen,  Stefanía G. Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri CCP á Íslandi, og Íris Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Kúla 3D. Mynd/Samtök iðnaðarins

Hugverkaráð Samtaka iðnaðarins hefur nú verið skipað, en rúmlega ár er síðan það var sett á laggirnar. Hlutverk ráðsins er að styrkja þau málefni sem eru sameiginleg fyrirtækjum sem starfa á alþjóðamörkuðum og byggja afurðir sínar og þjónustu á tækni og hugverki.

Markmið ráðsins er að efla samkeppnishæfni hugverka- og tæknifyrirtækja á Íslandi með því að vera leiðandi afl í hagsmuna- og stefnumálum þeirra. Í ráðinu sitja fulltrúar sjö starfsgreinahópa sem tilheyra hugverkasviði Samtaka iðnaðarins.

Í ráðinu eru Ragnheiður H. Magnúsdóttir hjá Marel og Kristinn Árni Lár Hróbjartsson hjá Kolibri frá Samtökum upplýsingatæknifyrirtækja, Pétur Már Halldórsson hjá Nox Medical og Svana Helen Björnsdóttir hjá Stika frá Samtökum heilbrigðisiðnaðarins, Frosti Ólafsson hjá ORF líftækni og María Bragadóttir hjá Alvogen frá Samtökum íslenskra líftæknifyrirtækja, Jóhann Þór Jónsson hjá Advania og Valgerður Hrund Skúladóttir hjá Sensa frá Samtökum gagnavera, Íris Ólafsdóttir hjá Kúla 3D og Erlendur Steinn Guðnason hjá Vizido frá Samtökum sprotafyrirtækja, Hilmar Veigar Pétursson og Stefanía G. Halldórsdóttir hjá CCP frá Samtökum leikjaframleiðenda og Kristinn Þórðarson og Helga Margrét Reykdal hjá Truenorth frá Sambandi íslenskra kvikmyndaframleiðenda.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK