Nú ætlar flugfélagið Etihad Airways að bjóða viðskiptavinum sínum að geta borgað meira fyrir að vera lausir við sætisfélaga í ferðum félagsins. Farþegar geta keypt allt að þrjú aukasæti.
Fyrirkomulagið virkar þannig að fólk getur boðið í sætin þegar það bókar flugmiðann og þeir sem fá tilboð sín samþykkt fá að vita það 30 klukkustundum fyrir brottför. Fer það m.a. eftir framboði sæta í hverri ferð fyrir sig.
Hægt verður að bjóða í nágrannasætin frá og með 3. júlí.
„Þetta veitir gestum okkar tækifæri til þess að fá meira pláss, aukin þægindi og næði á góðu verði,“ sagði í yfirlýsingu Etihad.
Flugfélagið tók ekki fram hvort þetta væri hugsað sem leið til þess að græða á sætum sem væru hvort sem er tóm.