Icelandair lækkar töluvert eftir uppgjör

Utan lækkana á bréfum Icelandair Group var fátt um tíðindi …
Utan lækkana á bréfum Icelandair Group var fátt um tíðindi í Kauphöllinni. mbl.is/Þórður

Hlutabréf í Icelandair Group lækkuðu um heil 7,74% í Kauphöllinni í dag en félagið gaf út ársfjórðungsuppgjör eftir lokun markaða í gær. Meðal áhyggjuefna er launakostnaðurinn sem hækkaði um 39% milli ára.

Viðskipti með bréf Icelandair Group námu 882 milljónum. Marel hækkaði um 1,5% í 782 milljóna króna viðskiptum og Hagar hækkuðu um 1,41% í 1,582 milljón króna viðskiptum. 

Aðrar breytingar voru innan við 1%. Öll önnur félög hækkuðu, nema VÍS sem lækkaði um 0,68% í 21 milljón króna viðskiptum og TM sem stóð í stað. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK