Vöruskipti við útlönd óhagstæð um 14,6 milljarða

Hagstofa Íslands.
Hagstofa Íslands. mbl.is/Árni Sæberg

Hagstofa Íslands hefur endurútgefið vöruviðskiptin við útlönd á fyrri helmingi ársins 2017 vegna nýrra upplýsinga um innflutning á skipum. Í júní voru fluttar út vörur fyrir 45,2 milljarða króna og inn fyrir 59,8 milljarða króna fob (63,6 milljarða króna cif).

Vöruviðskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 14,6 milljarða króna. Í júní 2016 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 14,7 milljarða króna á gengi hvors árs.


Á fyrri helmingi ársins 2017 voru fluttar út vörur fyrir 244,4 milljarða króna en inn fyrir 330,4 milljarða króna fob (352,0 milljarða króna cif). Í fyrri útgáfu nam innflutningurinn 325,5 milljörðum króna fob (347,2 milljörðum króna cif). 

Samkvæmt endurútgefnum tölum var því halli á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 85,9 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 64,2 milljarða á gengi hvors árs. Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því rúmum 21,7 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður. 

Á fyrri helmingi ársins 2017 var verðmæti vöruútflutnings 30,5 milljörðum króna lægra, eða 11,1%, á gengi hvors árs,¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 55,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,1% lægra en á sama tíma árið áður. Útflutningur á lyfjum og lækningatækjum dróst saman en útflutningur á áli jókst. Sjávarafurðir voru 38,0% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 21,9% lægra en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur var í útflutningi á ferskum fiski og frystum flökum. 

Á fyrri helmingi ársins 2017 var verðmæti vöruinnflutnings 8,7 milljörðum króna lægra, eða 2,6%, á gengi hvors árs,¹ en á sama tímabili árið áður. Aðallega dróst innflutningur á flugvélum og neysluvörum saman en á móti jókst innflutningur á skipum, eldsneyti, fólksbílum og hrá- og rekstrarvörum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK