Átta láta af störfum hjá Kviku

Kvika banki er sameinaður MP banki og Straumur.
Kvika banki er sameinaður MP banki og Straumur. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Átta starfsmenn Kviku láta af störfum vegna fyrirhugaðs samruna við Virðingu og Öldu ásamt breytingum á skipulagi bankans. Markaðs- og mannauðssvið verður lagt niður í þeirri mynd sem verið hefur og verkefni sem þar hafa verið unnin verða færð til.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kviku en þar segir einnig að framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar bankans hafi látið af störfum, en stefnt sé að því að hann muni áfram vinna með bankanum að ákveðnum verkefnum.

Tilkynnt verði um nýjan framkvæmdastjóra fyrirtækjaráðgjafar fljótlega, en fram til þess tíma muni forstjóri stýra rekstri sviðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK