Hlutabréf í Facebook lækkuðu verulega í verði eftir fréttaflutning af því að Cambridge Analytica hefði nýtt persónuupplýsingar Facebook notenda til að reyna að fá ókveðna kjósendur til að kjósa Donald Trump í bandarísku forsetakosningunum haustið 2016.
Um helgina var greint frá því að persónuupplýsingar um 50 milljóna manna af Facebook hafi verið nýttar, án þeirrar vitneskju, til að útbúa umfangsmikinn gagnagrunn um bandaríska kjósendur.
Verð hlutabréfa í samfélagsmiðlinum lækkaði um allt að 5,2% í dag og var verðhækkunin frá áramótum þannig þurrkuð út, að því er kemur fram í frétt Bloomberg. Þetta er mesta lækkun hlutabréfa í Facebook í tvo mánuði.
Stjórnmálamenn beggja vegna Atlantshafsins hafa kallað eftir því að Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook, svari fyrir hneykslið. Þá hefur einnig verið ákall um aðgerðir til þess að koma í veg fyrir að þetta geti komið aftur fyrir. Damian Collins, formaður menningar-, fjölmiðla og íþróttanefndar breska þingsins sagði í dag að tímabært væri að gefa yfirvöldum meiri völd til þess að hafa eftirlit með upplýsingaöryggi.