Ekki rétt að leysa félagið upp

Guðbrandur Sigurðsson framkvæmdastjóri Heimavalla.
Guðbrandur Sigurðsson framkvæmdastjóri Heimavalla. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Auðvitað segir það sig sjálft að ef markaðurinn mun ekki verðmeta okkur í takt við verðmæti eignasafnsins og rekstrarniðurstöðu félagsins getur vel verið að hluthafar taki einhverja svona ákvörðun. En ég held að það væri mikið frumhlaup að fara að leysa upp félagið núna, eftir að hafa eytt miklum tíma og fjármunum í að byggja það upp.“

Þetta segir Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri leigufélagsins Heimavalla, í samtali við ViðskiptaMoggann.

Heimavellir voru skráðir á markað í maí en í dag er markaðsvirði félagsins töluvert undir bókfærðu eigin fé fyrirtækisins. Hann segir að mikil verðmæti séu ekki aðeins í eignasafni fyrirtækisins sem býr yfir mikilli stærðarhagkvæmni heldur einnig í þeim kerfum sem félagið hefur byggt upp og hefur trú á því að Heimavellir séu álitlegur fjárfestingarkostur þegar til lengri tíma er litið.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK