Óviðjafnanlegur demantur var seldur á 50,3 milljónir svissneskra franka, sem svarar til 6,2 milljarða króna, í Genf í gærkvöldi. Demanturinn, sem er bleikur að lit, er tæplega 19 karöt og hefur aldrei fengist jafnhátt verð fyrir hvert karat.
Demanturinn var seldur á uppboði hjá Christie's og segir uppboðshúsið að um nýtt met sé að ræða en demanturinn hefur ekki sést opinberlega í tvo áratugi. Hann var áður í eigu Oppenheimer-fjölskyldunnar sem rak í áratugi De Beers-demantanámufyrirtækið. Demanturinn var seldur til Harry Winston, munaðarvörufyrirtækis í eigu Swatch.
„2,6 milljónir Bandaríkjadala á karat. Það er heimsmet fyrir hvert karat bleiks demants,“ segir Francois Curiel, yfirmaður Christie's í Evrópu. „Fyrir mér er þessi steinn Leonardo da Vinci allra demanta.“
Demanturinn, sem er 18,96 karöt, fannst í suðurafrískri námu fyrir öld. Sennilegt er talið að hann hafi verið skorinn á þriðja áratug síðustu aldar en ekki meðhöndlaður síðan þá.