Sætanýting WOW air 85% í nóvember

mbl.is/Eggert

WOW air flutti 197 þúsund farþega til og frá land­inu í nóvember eða um 0,5% fleiri farþega en í nóvember árið 2017. Þá var sæta­nýt­ing WOW air 85% í nóvember í ár en var 88% í fyrra.

Um var að ræða 4% aukn­ingu á fram­boðnum sætis­kíló­metr­um miðað við sama tíma­bil í fyrra, að því er félagið greinir frá.

Þá segir, að hlutfall tengifarþega hafi aukist en í ár hafi hlutfallið verið 53% í nóvember miðað við 49% á sama tíma í fyrra.

Það sem af er ári hef­ur WOW air flutt rúmlega 3,3 millj­ónir farþega.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK