Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur verið ráðinn samskiptastjóri VÍS. Óskar tekur við af Andra Ólafssyni sem hverfur til starfa á öðrum vettvangi.
Þetta kemur fram í tilkynningu en Óskar Hrafn hefur störf í byrjun apríl.
Þar segir að Óskar Hrafn hafi áralanga reynslu af fjölmiðlum en hann var meðal annars fréttastjóri á Stöð 2, Vísi.is og DV. Hann var um tíma yfirmaður Stöðvar 2 Sport en hefur að mestu unnið sjálfstætt sem ráðgjafi undanfarin misseri.
Hjá VÍS mun Óskar Hrafn stýra miðlun upplýsinga til fjölmiðla og markaðsaðila. Til viðbótar mun hann bera ábyrgð á mótun ófjárhagslegrar upplýsingagjafar og samfélagsábyrgð félagsins.