Sigurður Kári til Landsbankans

Sigurður Kári Tryggvason.
Sigurður Kári Tryggvason. Ljósmynd/Aðsend

Sigurður Kári Tryggvason lögmaður hefur verið ráðinn til starfa hjá fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans. Sigurður Kári var áður lögfræðingur hjá Almenna lífeyrissjóðnum frá árinu 2016.

Hann starfaði sem fulltrúi hjá LEX lögmannsstofu árin 2011-2015, var í starfsnámi hjá EFTA-dómstólnum á árinu 2013 og sat í stjórn Landsbréfa 2011-2012. Hann starfaði áður hjá Landsbankanum á árunum 2009-2011 við lögfræðiráðgjöf, að því er fram kemur í tilkynningu frá bankanum. 

Sigurður Kári er héraðsdómslögmaður, með LL.M.-gráðu frá lagadeild Duke-háskóla í Bandaríkjunum og mag. jur.-gráðu frá lagadeild Háskóla Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK