Hagvöxtur hefur ekki mælst jafn lítill í Bretlandi og nú í áratug. Samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Bretlands hægði á hagvextinum á milli ára og var hann 0,3% á tímabilinu júlí til septemberloka.
Þetta er minni hagvöxtur heldur en spár höfðu gert ráð fyrir en að meðaltali hljóðuðu spár upp á 0,4% hagvöxt.