Hækka stýrivexti í Noregi

Á fyrsta ársfjórðungi, dróst efnahagur landsins saman um 0,6 prósent …
Á fyrsta ársfjórðungi, dróst efnahagur landsins saman um 0,6 prósent frá því sem var. mbl.is/Atli Steinn Guðmundsson

Seðlabanki Noregs tilkynnti í dag hækkun stýrivaxta um hálf prósentustig. Eru þeir nú komnir í 1,75 prósent. 

Aðgerðir þessar miða að því að ná tökum á verðbólgunni, en spár eru svartar fyrir septembermánuð. 

Í júní hafði bankinn gefið í skyn að hann hygðist hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig, en verðbólga mældist 6,8 prósent í júlí. 

Er þetta í fimmta skipti á síðastliðnu ári sem seðlabanki Noregs hækkar stýrivexti, en í annað skipti sem þeir eru hækkaði um hálft prósentustig. 

Á fyrsta ársfjórðungi, dróst efnahagur landsins saman um 0,6 prósent frá því sem var.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK