Hildur Margrét til liðs við hagfræðideildina

Hildur Margrét Jóhannsdóttir.
Hildur Margrét Jóhannsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Hildur Margrét Jóhannsdóttir, hagfræðingur, hefur verið ráðin til starfa í hagfræðideild Landsbankans.

Hildur Margrét lauk B.A.-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands árið 2016 og M.Sc.-gráðu í alþjóða- og stjórnmálahagfræði frá London School of Economics árið 2017.

Frá árinu 2020 var hún fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu. Áður starfaði Hildur Margrét tímabundið í utanríkisráðuneytinu og í sendiráði Íslands í London og þar áður í hagdeild Alþýðusambands Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK