Vörusala hjá Festi hf. sem rekur N1, Elko og Krónuna ásamt fleiru, nam 31,7 milljörðum króna á síðasta ári en það er 20,1 prósent aukning á milli ára. Vörusala fyrirtækisins nam 26,4 milljörðum króna árið 2021.
Þetta kemur fram í ársreikningi Festar.
Jafnframt kemur fram að N1, Elko og Krónan hafi skilað sinni bestu EBITDA-afkomu frá upphafi á síðasta ári ef ekki er tekið með í reikninginn söluhagnaður fasteigna hjá Krónunni á árinu 2021.
EBITDA-afkoma Festar nam 2,29 milljörðum á síðasta ári samanborið við 2,8 milljörðum árið 2021, sem jafngildir 18,4 prósent lækkun milli ára.
Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 6,8 milljörðum. Framlegðarstig nam 21,6% og lækkar um 3,1 p.p. en í uppgjörinu kemur fram að það sé vegna hækkunar á hrávöruverðum á heimsmarkaði milli ára.
Viðbótarkostnaður vegna nýs kjarasamnings á vinnumarkaði frá 1. nóvember nam um 200 milljónum á síðasta árs fjórðungi. Eigið fé í lok árs síðasta árs nam 34,46 milljörðum og eiginfjárhlutfall 36,9% samanborið við 39,4% í lok árs 2021.
„Árið 2022 litaðist af mikilli hækkun heimsmarkaðsverða á hrávörum sem leiddi til aukinnar veltu og lækkunar á framlegðarstigi, sérstaklega í eldsneytishluta starfseminnar. Aukin verðbólga og mikil hækkun stýrivaxta sköpuðu einnig áskoranir í rekstrinum en þrátt fyrir þetta tókst öllum fyrirtækjum samstæðunnar, með markvissum aðgerðum, að skila einni bestu rekstrarafkomu sinni frá upphafi,“ er haft eftir Magnúsi Kr. Ingasyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs- og staðgengils forstjóra Festar, í ársreikningnum.
Þá urðu þó nokkrar breytingar á lykilstjórnendum hjá Festi á árinu 2022 en Ásta Sigríður Fjeldsted var ráðin forstjóri Festi í september og tók við af Eggerti Þór Kristóferssyni, sem lét af störfum í júlí sama ár.
Að auki tók Guðrún Aðalsteinsdóttir við sem framkvæmdastjóri Krónunnar af Ástu S. Fjeldsted í september og Óttar Örn Sigurbergsson tók við sem framkvæmdastjóri ELKO 1. janúar af Gesti Hjaltasyni.