Beint: Má þetta bara?

Claus Stig Pedersen, leiðtogi sjálfbærnimála Deloitte á Norðurlöndum og meðeigandi.
Claus Stig Pedersen, leiðtogi sjálfbærnimála Deloitte á Norðurlöndum og meðeigandi. Ljósmynd/Deloitte

Samtök atvinnulífsins og Deloitte á Íslandi halda árlegan Sjálfbærnidag atvinnulífsins þar sem fyrirtæki á Íslandi geta sótt sér nýjustu þekkingu sem nýtist þeim í rekstri út frá sjálfbærni. Yfirskrift fundarins er Má þetta bara? og fer fundurinn fram í dag frá kl. 8:30-10:30.

Tilgangur dagsins í ár er að skoða þau viðskiptatækifæri sem felast í sjálfbærri umbreytingu á starfsemi fyrirtækja, hvernig sjálfbærni getur laðað að framtíðarviðskiptavini, gefið samkeppnisforskot, opnað dyr að auknu fjármagni og mikilvægi þess að vita hvenær er stutt í grænþvott. Aðalfyrirlesari dagsins er Claus Stig Pedersen, leiðtogi sjálfbærnimála Deloitte á Norðurlöndunum og meðeigandi, að því er segir í tilkynningu. 

Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi hér fyrir neðan. 

Dagskrá

Opnun: Better Business – Better world! Why The World Needs Business to Lead on Sustainability! How Business Can Leverage Sustainability for Business Benefits!

-Claus Stig Pedersen, leiðtogi sjálfbærnimála Deloitte á Norðurlöndum og meðeigandi.

 

Hvar liggja siðferðisleg mörk sjálfbærni og hvenær er stutt í grænþvott?

-Gunnar Sveinn Magnússon, meðeigandi og yfirmaður sjálfbærni- og loftslagsmála hjá Deloitte á Íslandi.

Pallborðsumræður: Er hægt að hagnast á sjálfbærni og má það?

-Umræðustjóri: Gunnar Sveinn Magnússon, meðeigandi og yfirmaður sjálfbærni- og loftslagsmála hjá Deloitte á Íslandi.

  • Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.
  • Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar.
  • Aðalheiður Jacobsen, eigandi og framkvæmdastjóri Netparta.
  • Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Regins.

Fundarstjóri: Hugrún Elvarsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK