Gettu betur

Gettu betur

Kaupa Í körfu

LIÐ Menntaskólans í Reykjavík bar sigur úr býtum í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, en úrslitaviðureignin fór fram í beinni útsendingu Sjónvarps í gærkvöldi. Þar sigruðu MR-ingarnir lið Menntaskólans á Akureyri með 28 stigum gegn 26. Bráðabana þurfti til að skera úr um úrslitin eftir að liðsmönnum MA hafði tekist að jafna metin með ótrúlegum hætti. Í bráðabananum svöruðu MR-ingar hins vegar fyrstu tveimur spurningunum rétt og sigruðu þar með í 14. skipti frá því keppnin var fyrst haldin.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar